Viltu gista í herbergi með útsýni yfir Selfossbæ eða íslenska náttúru?
Þú getur látið fara vel um þig í nýlegu Premium herbergi á Hótel Selfossi. Herbergið er með útsýni yfir vatnsmestu á, á Íslandi, brú og fjallgarð eða bæjarútsýni.
Hvert herbergi er að minnsta kosti 24 fm að stærð og baðherbergið er með annað hvort sturtu eða baðkeri. Í herberginu er ískápur, sjónvarp, öryggishólf, hárþurka, ketill, skrifborðsaðstaða, setuaðstaða þar sem eru tveir stólar með borðið á milli. Á Hótel Selfossi eru allir með frítt internet án lykilorðs, ef þú óskar eftir vakningarsímtali ásamat norðurljósasímtal þá endilega hafðu samband við móttökuna hjá okkur.